Flokkar
Flokkar
Valið Kuldi
Osprey Kestrel 38
Kestrel 38 hefur verið sérstaklega hannaður sem alhliða göngupoki.
Þegar heitt er í veðri gerir AirScape™ bakið það að verkum að loftflæðið helst gott um bakið.
Með stillanlegu baki og stillanlegu mjaðmabelti er hægt að stilla pokann þannig að hann passi þér sem best.
Þegar pokinn er rétt stilltur á þig fer 80% þyngdarinnar á mjaðmirnar og 20% þyngdarinnar á axlirnar. Það þýðir að minni líkur eru á verkjum í öxlum og baki meðan á göngu stendur.
Best er að hagræða þyngstu hlutunum sem með eru í för neðst í pokann.
Auðvelt aðgengi er að öllu dótinu í pokanum.
Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi gera þér kleift að setja göngustafina í og úr sjálf/ur án þess að leggja pokann niður eða biðja vin um hjálp.
Vatnsheld yfirbreiðsla kemur að góðum notum í rigningu og blautu veðri.
Þú þarft þó ekki að örvænta ef þú lendir í vindhviðum vegna þess að yfirbreiðslan er áföst, enda veitir kannski ekki af hérna á Íslandi.
Kestrel bakpokarnir frá Osprey eru léttir, mjög notendavænir og hlaðnir úthugsuðum smáatriðum sem að gera línuna þá vinsælustu frá Osprey.
Osprey Kestrel serían hefur allt sem til þarf fyrir þá sem gera kröfur til alhliða fjallabakpoka.
Kemur í tveim stærðum fyrir mismunandi baklengdir (S/M og M/L).
Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja vefinn samþykkir þú skilmála um vefkökur.