Kari Traa Lucie Long Sleeve er létt og mjúk merinóullar peysa fyrir konur, hönnuð sem þægilegt grunnlag fyrir útivist, ferðalög og daglega notkun. Peysan er úr 100% merínóull sem andar vel, hjálpar til við að viðhalda jöfnum hitastigi og veitir góða hlýju. Ullin er aðeins 17,5 míkron, sem gefur henni einstaklega mjúka áferð. Efnisþyngdin er 150 g/m², þannig að peysan hentar vel ein og sér í mildara veðri eða sem létt grunnlag undir öðrum fatnaði þegar kólnar. Kari Traa Lucie Long Sleeve er frábær sem grunnlag fyrir hlaup þar sem hún er ekki of þykk.
Eiginleikar:
- Sérstök efnisstykki undir handleggjum stuðla að betri loftun og auknum þægindum við hreyfingu.
- Flatir saumar draga úr núningi.
- Aðsniðið snið fylgir líkamanum vel og gerir auðvelt að klæðast peysunni undir millilag eða jakka.
- Ull sem andar vel.
- Bogadreginn faldur.
-
IWTO-vottuð og rekjanleg merinóull.
- Ullin kemur frá framleiðslu þar sem mulesing-aðferðin er ekki notuð.
Umhirða:
- Þvoið á ullarprógrammi við 30°C
- Þvoið með svipuðum litum
- Notið ekki þvottaefni með ensímum
- Ekki nota mýkingarefni
- Ekki vinda eða snúa flíkinni
- Ekki nota bleikiefni
- Ekki setja í þurrkara
- Má strauja við lágan hita, að hámarki 110°C
- Ekki þurrhreinsa