Patagonia Terravia Alpine eru léttar, slitsterkar og teygjanlegar softshell buxur fyrir konur, hannaðar fyrir fjallgöngur, klettaklifur og aðra útivist. Þær eru úr léttu efni sem andar vel og teygist í fjórar áttir, sem veitir mikið hreyfifrelsi og góð þægindi á löngum göngum og í klifri.
Eiginleikar:
· Auka styrkingar á setu og framan á skálmum auka slitþol á þeim svæðum sem verða mest fyrir núningi.
· Efnið er með DWR-vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun sem hjálpar til við að hrinda frá sér léttri úrkomu og raka. Meðhöndlunin er framleidd án þess að PFAS-efnum sé bætt við af ásetningi.
· Buxurnar eru með buxnaklauf með rennilás og stillanlegu belti sem hægt er að taka úr.
· Tveir renndir vasar að framan með netfóðri.
· Renndur vasi á hægra læri er staðsettur fyrir ofan hné, það sé auðvelt að komast í hann þegar klifurbelti er notað.
· Neðst á skálmunum er teygja með læsingu þannig það sé hægt að þrengja skálmarnar eftir þörfum.
· bluesign® APPROVED efni.
· Framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Efni og aðrar upplýsingar:
Aðalefni:85% endurunnið pólýester, 15% elastan.
Styrkingar:85% endurunnið pólýester, 15% elastan.
Vasafóður:100% endurunnið pólýester.
Snið:Aðsniðið – Slim fit.
Innri skálmalengd:79 cm / 31" – Regular.
Þyngd:310 g