Sportís Liðið - Sportís.is

Leita

SPORTÍS LIÐIÐ

SPORTÍS LIÐIÐ

Við erum stolt af að hafa öflugt íþróttafólk í liði með okkur og styðja það á leið að sínum markmiðum. 

Kynntu þér Sportís liðið og fjölbreyttan íþróttabakgrunn þess.

Þóra Bríet Pétursdóttir

Þóra Bríet Pétursdóttir

Ég byrjaði að hlaupa af alvöru með Náttúruhlaupum árið 2018 og hóf að þjálfa þar sama haust. Árið eftir fór ég á þjálfaranámskeið og hljóp Laugaveginn í fyrsta sinn. Síðan hef ég tekið þátt í fjölmörgum löngum utanvegahlaupum, meðal annars North Ultra, Esja Ultra og Hengli 100, auk þess að hlaupa Græna trefilinn, 101 km með 3.500 metra hækkun. Lengsta hlaupið mitt til þessa er Kullamannen 100 mílur árið 2024 og síðast hljóp ég 89 km í Puglia á Ítalíu. Ég hef einnig hlaupið þrjú maraþon. Næsta markmið er að komast í CCC og vinna mig síðan að UTMB.

Ég er algjör millihraðahlaupari og finnst langskemmtilegast í löngum hlaupum. Fyrir mér er sigur að koma brosandi í mark. Fyrsta markmiðið er alltaf að komast á ráslínuna og svo að klára með gleði. Ég elska samstöðuna, peppið og gleðina í íslenska hlaupasamfélaginu. Sem þjálfari finnst mér sérstaklega gefandi að fylgjast með hlaupurum finna sig, mæta reglulega og bæta sig á sínum forsendum.

Ég á margar uppáhaldsvörur hjá Sportís. HOKA skórnir og fatnaðurinn eru þar ofarlega, ásamt ullarfatnaðinum frá Kari Traa sem heldur á mér hita og endist vel. Mín allra uppáhaldsvara er þó HOKA Speedgoat 5 Spike GORE-TEX. Þeir eru þægilegir, grípa vel og gera mér kleift að njóta vetrarhlaupanna. Ég hef átt mitt par síðan 2022 og þrátt fyrir mikla notkun er það enn í góðu standi.Näak næringin hefur líka reynst mér frábærlega í löngum hlaupum.

Anna Berglind Pálmadóttir

Anna Berglind Pálmadóttir

Ég heiti Anna Berglind Pálmadóttir og er 47 ára hlaupakona frá Akureyri, framhaldsskólakennari, þriggja barna móðir og amma tveggja stelpna. Ég byrjaði að hlaupa af alvöru 35 ára og komst ári síðar í landsliðið í frjálsum íþróttum. Fljótlega tóku utanvegahlaupin við og ég hef verið í landsliði Íslands í utanvegahlaupum frá 2019.

Ég hef sigrað fjölmörg hlaup hér heima og á Spáni. Þar standa upp úr sigrar í Laugaveginum 2019 og Tenerife Blue Trail 2018, auk þess að fara undir fimm tíma í Laugaveginum. Ég á einnig fjölmörg Íslandsmet í aldursflokkum, á vegalengdum frá 1.000 metrum upp í maraþon.

Hlaupin gefa mér mikið, bæði líkamlega og andlega. Eftir alvarlegt slys var óvíst hvort ég gæti hlaupið aftur og því kann ég enn betur að meta þau í dag. Ég legg mig fram um að ná mínum besta árangri en nýt þess líka að fara í útivist og fjallabrölt með vinum og fjölskyldu.

Ég hef eingöngu hlaupið í HOKA síðustu 7–8 árin. Tecton X hefur lengi verið minn helsti keppnisskór utanvega, en Rocket X Trail er nýr í uppáhaldi. Mafate og Speedgoat 7 henta mér vel í íslenskum aðstæðum og negldu Speedgoat skórnir gera gæfumuninn í snjó og hálku.

Á götunni vel ég Cielo X og Rocket X í keppni, Mach X í hraðaæfingar og Clifton eða Rincon í rólegt skokk og daglega notkun. Ég geri miklar kröfur til hlaupaskóa og hjá Sportís finn ég HOKA skó fyrir allar aðstæður.

Karlotta Ósk Óskarsdóttir

Karlotta Ósk Óskarsdóttir

Karlotta Ósk Óskarsdóttir er ein fremsta ofurhlaupakona Íslands. 

Hún sérhæfir sig í keppnum sem standa yfir í marga sólarhringa, þar sem úthald, skipulag og andlegur styrkur skipta miklu máli.

Karlotta á fjölmörg Íslandsmet í 48 klukkustunda, 72 klukkustunda, sex daga og tíu daga hlaupum. Í júlí 2025 varð hún fyrsta íslenska konan til að ljúka yfir 500 km ofurhlaupi og endurtók leikinn aðeins fjórum vikum síðar, í ágúst 2025.

Í maí 2026 varð hún fyrsti Íslendingurinn til að ljúka tíu daga hlaupi þegar hún hljóp 742,6 kílómetra í Sofiu í Búlgaríu. Þar sló hún tvö Íslandsmet og hljóp langlengstu vegalengd sem Íslendingur hefur lagt að baki í keppnishlaupi.

Sumarið 2027 stefnir hún á að hlaupa 500 mílur, eða 805 kílómetra.

Karlotta hefur hlaupið í Hoka Clifton skóm flest sín hlaup.