Um okkur - Sportís.is

Leita

Um okkur

Sportís – frá borðstofuborði í Breiðholti í Skeifuna

Saga Sportís hófst árið 1983 við borðstofuborð í blokkaríbúð í Breiðholti. Þar voru fyrstu skrefin stigin í rekstri fjölskyldufyrirtækis sem hefur síðan vaxið og þróast með kynslóðum viðskiptavina.

Í upphafi hét fyrirtækið Sportvöruþjónustan og starfaði lengst af sem heildverslun. Nafnið var lýsandi en gat þó valdið skemmtilegum misskilningi. Eftir ítrekuð símtöl þar sem spurt var hvort þetta væri „Skordýraþjónustan“ varð Sportís fyrir valinu – styttra, þjálla og með minni hættu á fyrirspurnum um meindýraeyðingu.

Margir muna eftir vörunum sem við fluttum inn á fyrstu árunum. L.A. Gear skórnir nutu mikilla vinsælda og Matinbleu-krumpugallarnir voru nánast staðalbúnaður í fataskápum íslenskra kvenna. Dance France æfingafatnaður og O’Neill fatnaður áttu líka sinn fasta aðdáendahóp og Osh Kosh barnafatnaðurinn seldist vel um allt land.

Árið 1998 tókum við við Cintamani og byggðum merkið upp í eitt vinsælasta útivistarmerki landsins á þeim tíma. Það var síðan selt árið 2009. Á þessum árum urðu einnig tímamót í starfseminni þegar við opnuðum okkar fyrstu verslun í Austurhrauni árið 2005 og tókum á móti viðskiptavinum beint, samhliða heildversluninni.

Stærsta skrefið í verslunarrekstrinum kom árið 2021 þegar Sportís flutti í Skeifuna 11. Þá fórum við úr 150 fermetrum í 1.390 fermetra og opnuðum stóra sportvöruverslun með rými fyrir enn fjölbreyttara úrval. Þar opnuðum við einnig Kulda, sérhæfða deild með nokkrum af virtustu snjóbretta- og fjallahjólamerkjum heims.

Í dag eru HOKA, ASICS, Kari Traa, Bula, Canada Goose, Beyond Medals, Reima og Casall meðal okkar vinsælustu vörumerkja. Til viðbótar seljum við og flytjum inn um 40 önnur vörumerki. Við þjónustum bæði einstaklinga og vinnustaði og útvegum mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins vinnuskó og fatnað.

Í sama húsnæði er einnig tískuvöruverslunin Sif Boutique, sem hefur verið starfrækt í 15 ár. Þar er lögð áhersla á vandaða hönnun fyrir konur, einkum ítalskan, spænskan og danskan kvenfatnað, ásamt fallegri gjafavöru. Meðal vörumerkja verslunarinnar eru Mama b, Lurdes Bergada, Trine Kryger Simonsen og Sort Aarhus.

Starfsemin nær þó langt út fyrir sportvörur og tísku. Önnur deild fyrirtækisins hefur selt og byggt flestar vatnsrennibrautir í sundlaugum landsins. Þá seljum við Caretta ferðavagna og sinnum einnig bílainnflutningi. Verkefnin hafa því verið fjölbreytt frá því fyrstu pantanirnar voru afgreiddar við borðstofuborðið í Breiðholti.

Þótt fermetrunum hafi fjölgað og starfsemin tekið miklum breytingum er Sportís enn fjölskyldufyrirtæki. Í meira en fjóra áratugi höfum við fylgt Íslendingum í leik, starfi og útiveru – og hlökkum til að halda því áfram.

Sportís fjölskyldan - frá vinstri: Anna S. Gardarsdóttir, Hlynur Skúli Skúlason, Sigrún Kristín Skúladóttir, Elva Rósa Skúladóttir, Skúli J. Björnsson.


Hér eru sýnishorn af nokkrum auglýsingum frá fyrsta áratugnum hjá Sportís: