Asics Novablast 6 er léttur og vel dempaður hlaupaskór fyrir hlaupara sem vilja mjúka lendingu, fjaðrandi tilfinningu og kraftmikla fráspyrnu. Skórinn hentar vel fyrir fjölbreyttar hlaupaæfingar, allt frá rólegum daglegum hlaupum yfir í hraðari æfingar.
Eiginleikar
- Miðsólinn sameinar FF BLAST™ MAX dempun og nýjan FF TURBO™ SQUARED dempun undir framfæti. FF BLAST™ MAX dempunin veitir mjúka og fjaðrandi dempun, en FF TURBO™ SQUARED eykur svörun og orkuskil í fráspyrnu.
- Uppfærð lögun miðsólans stuðlar að mýkri yfirfærslu frá lendingu yfir í fráspyrnu.
- Yfirbyggingin er úr léttu engineered woven efni sem andar vel og aðlagast að náttúrulegri hreyfingu fótarins og veitir þægilega og örugga passun.
- Sérstök hönnun tungunnar heldur miðfætinum vel og minnkar líkurnar á því að tungan færist til við hlaup.
-
ASICSGRIP™ gúmmí undir framfæti veitir aukið grip og öruggari fráspyrnu, sérstaklega á röku undirlagi.
-
AHAR™ LO gúmmí er staðsett á völdum svæðum sólans fyrir betra grip og góða endingu.
- Hlutlaus skór.
- 8 mm drop – þyngd 253 gr.
Hvað er nýtt?
- Í Novablast 5 er notað FF BLAST™ MAX í miðsólanum, en í Novablast 6 er bætt við FF TURBO™ SQUARED undir framfætinum. Þessi breyting á að auka fjöðrun, orkuskil og betri svörun í fráspyrnu. Miðsólalögunin hefur einnig verið endurmótuð til að gera yfirfærsluna í gegnum hlaupskrefið mýkra. Léttari yfirbygging úr engineered woven efni sem andar betur og laga sig betur að hreyfingu fótarins, á sama tíma og hún heldur vel um miðfótinn. Betra grip með ASICSGRIP™ undir framfæti ásamt AHAR™ LO. Sem gefur betra grip, sérstaklega á röku yfirborði, og meiri öryggi í fráspyrnu. Novablast 6 er léttari, með meiri fjöðrun en Novablast 5.
Best fyrir
- Dagleg hlaup
- Hraðari æfingar