D_b_ Essential Backpack 12L
Léttur og nettur 12 lítra bakpoki fyrir vinnu, skóla og dagleg erindi. Opinu að ofan er rúllað niður og það fest með krók, svo hægt sé að laga stærð pokans að því sem er í honum.
Eiginleikar
- Bólstrað fartölvuhólf heldur tölvunni aðskildri frá öðrum hlutum.
- Sérstakur vasi að innan heldur vatnsbrúsanum á sínum stað.
- Léttar ABS-styrkingar í Rib-Cage Construction™ halda lögun pokans og verja innihaldið.
- Ytra efnið hrindir frá sér raka.
- Með Hook-Up System™ má festa bakpokann við samhæfa D_b_ ferðatösku á hjólum.
Tæknilegar upplýsingar
-
Rúmmál: 12 L.
-
Mál (hæð × breidd × dýpt): 46 × 31 × 12,5 cm.
-
Þyngd: 550 g.
-
Efni: Ytra efnið og fóður úr 100% endurunnu pólýester.