D_b_ Essential Backpack 24L
Stílhreinn, léttur og rúmgóður bakpoki.
D_b_ Essential Backpack 24L er fjölhæfur bakpoki sem sameinar skandinavíska hönnun, slitsterk efni og notagildi. Bakpokinn hentar einstaklega vel fyrir vinnuna, skólann, ferðalög og dagleg ævintýri.
Tilvalinn hversdagsbakpoki fyrir þau sem kunna að meta einfaldleika, stíl og praktískar lausnir.
Eiginleikar
- Rúmgott 24 lítra aðalhólf með rúllulokun (Roll Top) gerir þér kleift að aðlaga stærð bakpokans eftir þörfum. Lokunin er tryggð með sérhönnuðum festingum frá D_b_.
- Bólstrað fartölvuhólf rúmar allt að 16" MacBook Pro og innri vasi fyrir vatnsbrúsa heldur honum á sínum stað.
- Einkaleyfisvarin Rib Cage Construction™ styrking veitir innihaldi bakpokans aukna vörn án þess að auka þyngd hans að óþörfu. Styrktur botn hjálpar bakpokanum að halda lögun sinni, jafnvel þegar hann er aðeins hálffullur.
- Bakpokinn er úr veðurþolnum efnum og er með Hook-Up System™ festingum sem gera kleift að festa hann við ferðatöskur á hjólum frá D_b_.
Tæknilegar upplýsingar:
- Rúmmál: 24 lítrar
- Hæð: 45,5 cm
- Breidd: 33 cm
- Dýpt: 18 cm
- Þyngd: 650 g
- Ytra efni: Endurunnið pólýamíð eða pólýester, eftir litaútfærslu
- Fóður: 100% endurunnið pólýester
- Hannaður í Skandinavíu