GoPro Protective Sleeve er létt og höggdeyfandi gúmmíhlíf fyrir GoPro HERO (2024). Hlífin veitir aukna vörn gegn rispum og smáhöggum án þess að auka fyrirferð myndavélarinnar mikið.
Eiginleikar
- Höggdeyfandi hönnun veitir aukna vörn ef myndavélin dettur.
- Þunn og létt hlíf fellur þétt að myndavélinni.
- Op veita aðgang að hnöppum, snertiskjá, stöðuljósi, festiflipum og USB-tengi.
- Auðvelt er að setja hlífina á og taka hana af án verkfæra.
Í pakkanum
- Protective Sleeve hlíf fyrir HERO.
Tæknilegar upplýsingar
-
Gerð: Höggdeyfandi myndavélahlíf.
-
Efni: Gúmmí.
-
Samhæfni: GoPro HERO (2024).