Hoka Arahi 9 er vel dempaður stöðugleikaskór, hannaður fyrir dagleg hlaup og göngur. Skórinn sameinar mjúka dempun og markvissan stuðning án þess að verða óþarflega stífur eða fyrirferðarmikill. Arahi 9 hentar sérstaklega vel fyrir hlaupara sem vilja aukinn stöðugleika og stuðning við yfirsnúning, en vilja jafnframt mjúkan og þægilegan skó fyrir dagleg hlaup.
ATH - litlar stærðir (mælum með að taka 1/2-1 stærð stærra en vanalega)
Eiginleikar:
- Uppfært H-Frame™ stöðugleikakerfi er innbyggt í miðsólanum og hjálpar til við að draga úr yfirsnúningi fótarins. Kerfið veitir stöðuga undirstöðu og styður við fótinn í gegnum skrefið, án þess að takmarka náttúrulega hreyfingu hans.
-
Miðsólinn er úr tvíþéttu, þrýstimótuðu EVA-froðu. Mismunandi þéttleiki frauðsins gerir kleift að sameina mýkri dempun við stöðugri stuðning þar sem hans er þörf. Útkoman er þægileg og stöðug tilfinning sem hentar vel fyrir daglegar hlaupaæfingar og lengri göngur.
- Yfirbyggingin er úr engineered mesh efni og er þéttari á innanverðum hluta fótarins fyrir betra aðhald og stuðning. Annars staðar er efnið opnara til að tryggja góða öndun.
- Þrívíddar sílikonprent og styrkingar á yfirbyggingunni hjálpa skónum að halda lögun sinni og tryggir betri passun.
- Sólinn er úr slitsterku Super Abrasion Rubber gúmmíi. Sérstök hólfaskipt hönnun sólans stuðlar að mjúkri yfirfærslu í gegnum skrefið.
- Endurskins til að auka sýnileika í lítilli birtu.
- 8 mm drop - þyngd 233 gr
Aðrar upplýsingar:
Stöðugleiki: Mikill – Stability
Dempun: Miðlungs til mikil
Undirlag: Malbik