Hoka Clifton Pro - meiri kraftur í daglega hlaupið. Hoka Clifton Pro tekur léttleikann og mýktina sem Clifton línan er þekkt fyrir og bætir við meiri svörun og orkumeiri fráspyrnu. Hann hentar því sérstaklega vel fyrir hlaupara sem vilja fjölhæfan hlaupaskó í daglegar æfingar, hraðari hlaup og löngu hlaupin.
ATH - litlar stærðir (mælum með að taka 1/2-1 stærð stærra en vanalega)
Helsti munurinn á Clifton Pro og Clifton 11: Báðir skórnir eru hlutlausir, vel dempaðir, með 8 mm dropi og 42/34 mm sólaþykkt. Helsti munurinn felst í froðunni og veltisólanum. Clifton 11: er klassískur daglegur æfingaskór með CMEVA-miðsóla. Mesta áherslan þar er mjúk og þægileg dempun. Hann hentar því sérstaklega vel í róleg hlaup, endurheimtar hlaup, göngur og daglega notkun. Clifton PRO: er kraftmeiri útgáfa. SCF-miðsólinn er léttari í svörun og skilar meiri orku í hverju skrefi, á meðan kraftmeiri MetaRocker™- veltisóli ýtir undir hraðara flæði. Hann hentar því betur í tempó hlaup, hraðari æfingar og löng hlaup þegar kraftmeiri fráspyrna skiptir máli.
Eiginleikar
✔PROGLIDE™+ miðsóli úr SCF- veitir létta dempun og fjaðrandi tilfinningu sem stuðlar að kraftmeiri fráspyrnu.
✔Kraftmeiri MetaRocker™- veltisóli stuðlar að mjúkri og hraðari yfirfærslu frá lendingu yfir í fráspyrnu. Rocker lögunin er meira áberandi en í hefðbundnum Clifton sem auðveldar yfirfærsluna frá hæl að tá og stuðlar að hraðara og liprara skrefi.
✔Hár miðsóli, 42 mm undir hæl og 34 mm undir tá, veitir ríkulega dempun
✔Yfirbyggingin er úr léttu engineered mesh efni sem andar vel og veitir þægilegt aðhald um fótinn.
✔Mjúkur og þægilegur kragi við hæl og stöðug tunga styðja vel við fótinn og eykur vellíðan á löngum hlaupum.
✔Durabrasion-gúmmí undir framfæti og Super Abrasion-gúmmí undir hæl auka endingu á þeim svæðum sem verða fyrir mestu álagi. Endurskin eykur sýnileika þegar hlaupið er í lítilli birtu.
✔8 mm drop - þyngd 242-296 gr.
Best fyrir
✔Dagleg hlaup, interval og tempó æfingar og keppnishlaup.
Clifton Pro er frábært kostur fyrir hlaupara sem vilja kraftmikla hlaupaskó með góðri svörun í daglegar hlaupaæfingar, hraðari hlaup og löngu hlaupin.