Hoka Trail Run Vest 8L er létt og mjög tæknilegt hlaupavesti sem er hannað fyrir utanvegahlaup, lengri hlaup og keppnir þar sem mikilvægt er að hafa drykk, næringu og annan nauðsynlegan búnað innan seilingar.
Vestið liggur þétt að líkamanum, það er hannað þannig að þyngdin dreifist jafnt og búnaðurinn haldist stöðugur á meðan hlaupið er. Vestið er með alls ellefu vösum.
Eiginleikar
Tvö hólf fyrir 500 ml brúsa, brúsar fylgja með. Teygjufestingar sem halda brúsunum stöðugum.
Að framan eru teygjanlegir vasar og vasar með rennilás, ásamt litlum innri vasa fyrir smáhluti. Rennilásavasi á öxlinni veitir öruggt geymslupláss fyrir til dæmis lykla eða annan smábúnað.
Aftan á vestinu er stór renndur vasi og tveir rúmgóðir opnir vasar neðarlega sem ná utan um hliðarnar. Þessi uppbygging veitir gott geymslupláss fyrir næringu, aukafatnað og annan búnað sem þarf á lengri hlaupum.
Vestið er úr léttu og öndunargóðu 3D-netefni sem er vatnsfráhrindandi og andar mjög vel.
Tvær smellufestingar að framan, þannig það er auðvelt að taka það af sér og setja það aftur á sig. Sem hentar mjög vel þegar maður þarf að sækja eitthvað á meðan hlaupinu stendur.
Vestið er með teygjufestingum fyrir stafapoka. Stafapokinn er seldur sér.
Endurskin.
Lítill vasi að framan með öryggisflautu
Þvottaleiðbeiningar
Sponge clean only, do not bleach, do not tumble dry, do not iron, do not dry clean.
Efnislýsing
Efni og eiginleikar:
100% Recycled Polyester
Mælum einnig með
Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja vefinn samþykkir þú skilmála um vefkökur.