Hoka Novafly Half Tight
Novafly Half Tight eru styttri útgáfa af Novafly Run Tight.
Þær halda vel við án þess að takmarka hreyfigetu.
Henta vel fyrir götu- og utanvegahlaup.
Úr mjúku efni sem andar vel.
Teygjanlegt mittisband sem passar að buxurnar haldist vel á sínum stað.
Buxurnar eru með nokkrum hentugum vösum fyrir það helsta sem þarf að hafa með á hlaupum. Opinn vasi á læri hentar vel fyrir síma, en renndur vasi heldur minni verðmætum öruggum. Aftan á mittinu eru einnig vasar sem henta vel til þess að geyma gel, lykla eða annan smábúnað.
Efnið fylgir hreyfingum líkamans vel.
Hægt að nota þær einar og sér eða sem undirbuxur.