Hoka Skyflow Wind Jacket
Jakkinn er úr léttu en slitsterku Aeroshell™-efni sem er bæði vind- og vatnsfráhrindandi.
Jakkinn hentar sérstaklega vel fyrir hlaup.
Efnið er með 5K vatnsþol og 5K öndun.
Hægt er að pakka jakkanum saman í brjóstvasann þannig að hann taki lítið pláss í hlaupavestinu.
Hettan liggur þétt að höfðinu, ermalíningar og faldur hjálpa til við að halda jakkanum vel á sínum stað og minnkar líkurnar á því að kalt loft komist inn.
Á brjóstinu er vasi með rennilás fyrir lykla, kort eða annan smábúnað.