Hoka Skyglow Half-Zip
Léttur og hlýr hlaupajakki sem er hannaður fyrir hlaup og æfingar í köldu veðri.
Ytra efnið er létt og teygjanlegt og er DWR-vatnsfráhrindandi.
Að innan er mjúkt, burstað micro-grid flísefni sem heldur á þér hita án þess að gera jakkann þungan.
Rennilás að framan sem hægt er að opna á báða vegu.
Jakkinn er með innri vettlingum úr mjúku, burstuðu efni sem hægt er draga yfir hendurnar þegar þörf er á.
Falinn renndur vasi á brjósti.
Aftan á jakkanum er renndur vasi sem hentar vel til þess að geyma húfu, hanska eða annan léttan búnað.
Endurskinsatriði allan hringinn í kringum jakkann.