Hoka Stinson 8 hefur verið endurhannaður frá grunni og er léttasti Stinson skórinn til þessa. Hann sameinar ótrúlega mýkt og stöðugleika hvort sem hlaupið er undanvegar eða á malbiki. Stinson 8 hentar vel fyrir hlaupara sem vilja skó með mikla dempun og góðum stuðningi.
ATH - litlar stærðir (mælum með að taka 1/2-1 stærð stærra en vanalega)
Hvað er nýtt? Stinson 8 er um 45 gr léttari en forveri sinn, ný yfirbygging sem andar betur með styrkingu um miðfótinn sem hjálpar til við að halda fætinum stöðugum. Endurbætt H-Frame™ stöðugleikakerfi. Extra mjúkt neðra lag í miðsólanum fyrir mjúka höggdeyfingu.
Eiginleikar
✔Tvöfaldur miðsóli sem sameinar mjúka dempun og stöðugleika. Neðra lagið er úr sérstaklega mjúkri froðu sem dregur úr höggum. H-Frame™ stöðugleikakerfið eykur stöðugleika og dregur úr óæskilegri hreyfingu. Kerfið veitir öruggan stuðning án þess að leiðrétta náttúrulegar hreyfingu fótarins um of.
✔Breitt undirlag skósins eykur stöðugleika og ríkuleg dempunin veitir mjúka og þægilega tilfinningu.
✔Yfirbygging úr mesh efni sem andar mjög vel. Mótaðar styrkingar utan um yfirbygginguna halda vel utan um miðfótinn.
✔Bólstruð tunga og hælsvæði. Tungan er fest við skóinn á báðum hliðum til að bæta snið og koma í veg fyrir að hún færist til.
✔Durabrasion-gúmmí á sóla og endurhannað mynstur undir sóla með 3,5 mm tökkum veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi.
✔Styrkt tásvæði.
✔5 mm drop - þyngd 320 gr.
Best fyrir
✔Untavegahlaup og götuhlaup.