Hoka Trail Run Crew Sokkar
Léttir og þægilegir hlaupasokkar sem henta vel fyrir utanvegahlaup og fjallgöngur.
Veita góðan stuðning við ilina án þess að vera of þykkir.
Létt bólstrun við tá og hæl.
Úr efni sem andar mjög vel og mesh efni að ofan.
Silíkon grip efst á ristinni og undir táberginu sem hjálpar til við að halda sokkunum á sínum stað.
Ef þú ert að leita að hinum fullkomnu sokkum fyrir utanvegahlaupin eða fjallgöngurnar þá mælum við með þessum.