D_b_ Hugger Backpack 30L Reflective Black
Stílhreinn, slitsterkur og rúmgóður bakpoki með endurskinsefni.
D_b_ Hugger Backpack 30L Reflective Black er fjölhæfur bakpoki sem sameinar einkennandi skandinavíska hönnun, slitsterk efni og framúrskarandi notagildi. Bakpokinn hentar einstaklega vel fyrir vinnuna, skólann, ræktina og styttri ferðalög.
Reflective Black er sérstök litaútfærsla með svörtu endurskinsefni sem endurkastar ljósi og eykur sýnileika í myrkri. Bakpokinn hentar því sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður yfir dimmustu mánuði ársins.
Tilvalinn bakpoki fyrir þau sem gera miklar kröfur um endingu, gott skipulag, sýnileika og hönnun.
Eiginleikar
Tæknilegar upplýsingar
- Rúmmál: 30 lítrar
- Hæð: 52 cm
- Breidd: 31 cm
- Dýpt: 22,5 cm
- Þyngd: 1,23 kg
- Ytra efni: 100% pólýester með endurskini
- Fóður: 100% pólýester
- Styrkingar: ABS-plast
- Litur: Reflective Black
- Hannaður í Skandinavíu