Hyperice Normatec 3 fætur - Sportís.is

Leita

Hyperice Normatec 3 fætur

Litur: Black
Black
Stærð: ONE

Hyperice Normatec 3 fætur

Normatech þrýstimeðferðin byggir á áralöngum rannsóknum og er því vísindalega studd og er það merki sem flestir af bestu íþróttamönnum heims notast við. Meðferðin hefur einnig notið mikilla almennra vinsælda hjá fólki sem er t.d. í mikilli hreyfingu eða á löngum vinnuvöktum þar sem ávinningurinn skilar sér fljótt, auk þess sem mikil vitundarvakning hefur orðið um hversu mikilvægt er að huga að endurheimt. 

Hægt er að nota Normatech vörurnar sem hluta af upphitun en algengast er að nota þær eftir æfingar eða líkamlegt álag. 

Normatec háþrýstistígvélin notar loftþrýsting til þess að búa til endurnærandi nudd sem vinnur að því að hjálpa þér að hámarka frammistöðu þína og auka vellíðan.

 

Normatech 3 háþrýstistígvél

  • Losa um bólgur og bjúg.

  • Auka blóðflæði - Betra flæði sogæðakerfis um allan líkamann.

  • Vinnur á fótapirringi.

  • Minnkar verki, mjólkursýrur, harðsperrur og vöðvaþreytu í fótleggjum.

  • Viðhalda hreyfifærni.

  • Flýta fyrir endurheimt eftir erfiðar æfingar og álag.

  • Skiptast í 5 svæði sem nudda fæturnar eftir Zoneboost kerfinu.

    • Svæðin skarast hvort yfir annað (overlapping)
  • Stillanlegur kraftur - 7 mismunandi stillingar.

  • 4 tímastillingar: 15, 30, 45 og 60 mínútur.

  • Einfalt og þægilegt í notkun.

  • Hleðslubatterí sem gerir auðvelt að nota stígvélin þar sem þér líður best.


Nánari upplýsingar:

  • Létt og meðfærilegt - Stjórnstöðin vegur aðeins um 1,54 kg

  • Hleðsla rafhlöðu endist í um 3 klst í notkun.

  • Bluetooth - hægt að nota í Hyperice appinu þar sem þú getur stillt kerfið að þinni notkun.

  • TSA samþykkt fyrir handfarangur.

  • Þessi stígvél eru standard stærð en hægt er að sérpanta lengri og styttri.


Það sem fylgir með:

  • Normatec 3 stjórnstöðin.

  • Tvö stígvél.

  • Snúrur til þess að hlaða tækið.

  • Slanga sem tengist úr stígvélunum í stjórnstöðina.