Impala Latis Hjólabretti
Impala Latis Cruiserboard er tilvalið til þess að renna sér um götu og stíga og nota í Hjólabrettagarði.
Breið og stöðug plata sem gerir brettið mjög þægilegt í notkun. Hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Platan er gerð úr sjö lögum af sterkum hlynvið og er með léttri sveigju ásamt uppbeygðum fram- og afturenda sem veita góða stjórn.
Mjúk 61 mm hjól renna vel yfir ójafnt undirlag.
ABEC-7 legur stuðla að lipru og mjúku rennsli.