Impala Línuskautar
Stílhreinir og þægilegir línuskautar, sem henta vel fyrir byrjendur og lengra komna.
Henta bæði til þess að nota innandyra og utandyra.
Sterk og mótuð skel sem veitir góðan stuðning. Mjúkur og bólstraður að innan með góðri öndun.
Reimar og stillanleg spennufesting sem gerir það auðvelt að festa línuskautanna á sig og laga þá að fætinum.
70 mm hjól og ABEC-7 legur veita mjúkt og lipurt rennsli.
Afturbremsa fylgir með sem hægt er að festa á.
Tveir sexkantlyklar fylgja með.