Johaug Control Vest er létt og hlýtt dúnvesti fyrir konur, hannað fyrir útivist, æfingar og daglega notkun.Vestið sameinar létta dúnfyllingu og veðurþolið ytra efni sem veitir góða hlýju.
Eiginleikar
-
Fyllingin er úr 80% andadúni og 20% fjöðrum og veitir góða einangrun á köldum dögum. Auk þess er notuð 100% pólýesterfylling á völdum svæðum.
-
Ytra efnið er úr 100% pólýesteri og er bæði vatnshelt og öndunarhæft, með 10.000 mm vatnsheldni og 10.000 MVP öndun. DWR-vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun hjálpar einnig til við að hrinda frá sér raka og léttri úrkomu.
- Hár og hlýr kragi og hökuhlíf við rennilásinn eykur þægindi.
- Tveir renndir vasar að framan.
- Stillanlegur faldur.
- Einfalt og stílhreint útlit gerir vestið hentugt bæði við æfingar og til þess að nota dagsdaglega.
- Hefðbundið snið.
- Aðalefni bluesign® APPROVED
Umhirða
- Þvoið við 30°C
- Þvoið með svipuðum litum
- Lokið öllum rennilásum fyrir þvott
- Ekki nota mýkingarefni
- Ekki nota bleikiefni
- Má setja í þurrkara á venjulegu prógrammi
- Notið þurrkbolta og þurrkið þar til vestið er alveg þurrt
- Ekki strauja
- Ekki þurrhreinsa