Kari Traa Lucie Pants eru léttar og mjúkar merinóullar buxur fyrir konur. Henta vel sem grunnlag fyrir útivist, ferðalög og daglega notkun. Buxurnar eru úr 100% merínóull sem veitir góða hitaeinangrun og hjálpar til við að halda þægilegu hitastigi, bæði í þurrum og rökum aðstæðum. Ullin er aðeins 17,5 míkron, sem gefur henni einstaklega mjúka áferð, en efnisþyngdin er 150 g/m². Lucie Pants eru létt ullargrunnlag og henta vel sem grunnlag fyrir hlaup.
Eiginleikar:
- Flatir saumar draga úr núningi og auka þægindi við hreyfingu.
- Teygjanlegt mitti heldur buxunum vel á sínum stað og aðsniðið snið gerir þær þægilegar undir öðrum fatnaði.
- Veitir góða hitaeinangrun, jafnvel þegar ullin er rök.
- Aðsniðið snið.
-
IWTO-vottuð og rekjanleg merinóull.
- Ullin kemur frá framleiðslu þar sem mulesing-aðferðin er ekki notuð.
Umhirða:
- Þvoið á ullarprógrammi við 30°C
- Þvoið með svipuðum litum
- Notið ekki þvottaefni með ensímum
- Ekki nota mýkingarefni
- Ekki nota bleikiefni
- Ekki setja í þurrkara
- Má strauja við lágan hita, að hámarki 110°C
- Ekki þurrhreinsa