Kari Traa Rose Long Sleeve 2.0
Einstaklega hlýr og mjúkur ullarbolur sem henta vel í útivist og daglega notkun. Bolurinn er úr 100% merino ull sem veitir góða einangrun, andar vel og hjálpar til við að halda jöfnu hitastigi.
Merino ullin er 19,5 míkron trefjar og er því einstaklega mjúk.
Merino ullin hefur náttúrulega lyktarvörn, sem gerir bolinn einstaklega hentugan til lengri notkunar og í fjölbreytta útivist.
Efnið vegur 240 gr.
Rose Long Sleeve 2.0 hentar vel sem innsta lag næst húðinni. Hún er því frábær í allskonar útivist í köldu veðri. Ullin klikkar ekki þegar það er kalt úti.
Flatir saumar sem minnka líkur á núningi við húð.
Ullin er RWS-vottuð samkvæmt Responsible Wool Standard, sem setur kröfur um dýravelferð og landnýtingu í framleiðslu.
Umhirða: Þvoið á ullarprógrammi við 30°C og með svipuðum litum, ekki nota þvottaefni sem inniheldur ensím, ekki nota mýkingarefni eða klór. Ekki setja í þurrkara eða í þurrhreinsun. Það má strauja við lágan hita, að hámarki 110°C.