Maurten Gel 100
Nánast allir fremstu þolíþróttamenn í heiminum nota vörurnar frá Maurten. Kolvetnaríkt orkugel hannað fyrir hlaupara, hjólara og þríþrautarfólk sem þurfa hraða og skilvirka orku á æfingum eða í keppni.
Inniheldur aðeins sex innihaldsefni, án viðbættra litarefna, rotvarnarefna eða bragðefna.
Innihaldsefni: Vatn, glúkósi, frúktósi, kalsíumkarbónat, glúkónsýra og natríumalgínat.
Hentar vegan.
Gelið inniheldur 25 grömm af kolvetni úr einstakri blöndu frúktósa og glúkósa (í hlutföllum 0,8:1) og um 100 kcal, sem gerir þér auðveldara fyrir að skipuleggja reglulega orkugjöf á lengri æfingum, hlaupum eða í keppni.
Ólíkt mörgum öðrum gelum á markaðnum, sem eru oft eins og vökvi eða síróp, eru Maurten gelin stífari og hafa gellíkari áferð. Með sérstakri Hydrogel tækni fara kolvetnin strax frá maganum niður í þarmana þar sem þau frásogast hraðar. Þetta gerir það líka að verkum að minni hætta er á að gelin valdi magaóþægindum.
Maurten Gel 100 er koffínlaust og hentar því vel bæði fyrir þá sem vilja forðast koffín og fyrir þá sem vilja hafa betri stjórn á koffíninntöku á keppnisdegi.