NEBO CURVBEAM™ 600 FLEX Headlamp
Létt og þægilegt hlaðanlegt höfuðljós með allt að 600 lúmena ljósstyrk og 180° ljósdreifingu.
NEBO CURVBEAM™ 600 FLEX er fjölhæft LED-höfuðljós sem sameinar öflugt ljós, breiða ljósdreifingu og sveigjanlega hönnun. Höfuðljósið hentar einstaklega vel fyrir útivist, hlaup, fjallgöngur, skíðagöngur, útilegur og vinnu.
Tilvalið höfuðljós fyrir þau sem gera miklar kröfur um þægindi, breiða ljósdreifingu og fjölbreytta notkunarmöguleika.
Eiginleikar
- Sex stillingar gera þér kleift að aðlaga ljósstyrk eftir aðstæðum.
- Sveigjanleg COB LED-ljósaræma veitir breiða og jafna 180° lýsingu sem nær vel út til hliðanna og lýsir upp stærra svæði en hefðbundið höfuðljós.
- Öflugt LED-ljós með mjóum ljósgeisla (Spot) skilar allt að 500 lúmenum með lýsingardrægni allt að 96 metrum.
- Hægt er að nota báða ljósgjafana samtímis og ná þannig allt að 600 lúmena ljósstyrk.
- Tveir aðskildir stjórnhnappar gera kleift að stjórna ljósgjöfunum hvorum fyrir sig.
- BackBalance Fit™ hönnunin staðsetur rafhlöðuna aftan á höfðinu sem stuðlar að jafnari þyngdardreifingu, auknum stöðugleika og þægindum við hreyfingu.
- Stillanlegt höfuðband með mjúku fóðri tryggir þægilega notkun.
- Ljósið er með 20° stillanlegum lýsingarhalla.
- Flex-Power™ tæknin gerir kleift að nota bæði meðfylgjandi hlaðanlega rafhlöðu og þrjár AAA-rafhlöður. Hentar sérstaklega vel í lengri ferðir þar sem takmarkað aðgengi er að rafmagni.
- Smart Power Control™ (SPC) tryggir mjúk umskipti á milli lýsingarstillinga.
- Direct-to-Low™ gerir kleift að kveikja beint á lægstu lýsingarstillingu.
- Ljósið er úr slitsterku áli, ABS-plasti og sveigjanlegu TPR-gúmmíi.
- Endurhlaðanleg 1.100 mAh litíumrafhlaða er hlaðin með USB-C hleðslusnúru.
- Gaumljós gefur til kynna stöðu rafhlöðu og hleðslu.
- Rafhlaðan endist í allt að 10 klukkustundir á lægstu stillingu.
- Vatnsvörn samkvæmt IPX4 staðli.
Lýsingarstillingar
Uppgefinn ljósstyrkur, lýsingartími og drægni miðast við notkun meðfylgjandi hlaðanlegrar rafhlöðu. Afköst geta verið mismunandi við notkun AAA-rafhlaðna.
| Stilling |
Ljósstyrkur |
Lýsingartími |
Drægni |
| Spot High – mikill |
500 lm |
1,5 klst. |
96 m |
| Spot Medium – miðlungs |
150 lm |
5,5 klst. |
53 m |
| Spot Low – lítill |
30 lm |
10 klst. |
23 m |
| 180° COB High – mikill |
300 lm |
2 klst. |
18 m |
| 180° COB Low – lítill |
100 lm |
4 klst. |
11 m |
| 180° COB + Spot |
600 lm |
1,5 klst. |
85 m |
Innifalið:
- NEBO CURVBEAM™ 600 FLEX höfuðljós.
- Endurhlaðanleg 1.100 mAh rafhlaða.
- Stillanlegt höfuðband.
- USB-A í USB-C hleðslusnúra.
AAA-rafhlöður fylgja ekki.