NEBO MYCRO® 700 Headlamp
Lítið og létt hlaðanlegt höfuðljós með allt að 700 lúmena ljósstyrk.
NEBO MYCRO® 700 er fjölhæft LED-höfuðljós sem sameinar mikinn ljósstyrk, nett hönnun og fjölbreytta notkunarmöguleika. Höfuðljósið hentar einstaklega vel fyrir útivist, gönguferðir, hlaup, útilegur, veiði og daglega notkun.
Eiginleikar
- Sex stillingar gera þér kleift að aðlaga ljósstyrkinn eftir aðstæðum.
- Turbo-stillingin skilar allt að 700 lúmenum með lýsingardrægni allt að 90 metrum.
- Rautt og grænt LED-ljós hjálpar til við að varðveita nætursjón og hentar vel þegar þörf er á dempaðri lýsingu í myrkri.
- Direct-to-Red gerir kleift að kveikja beint á rauða ljósinu án þess að fara í gegnum aðrar lýsingarstillingar.
- Ljósið er með 130° stillanlegum lýsingarhalla sem gerir þér kleift að beina ljósinu þangað sem þess er þörf.
- Hægt er að losa ljósið úr höfuðbandsfestingunni og festa það á skyggni derhúfu með klemmu sem fylgir ljósinu.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini stuðlar að þægindum og auknum sýnileika í myrkri.
- Smart Power Control™ (SPC).
- Minnisstilling gerir ljósinu kleift að muna síðustu lýsingarstillingu sem notuð var.
- PowerSave™ læsing kemur í veg fyrir að kvikni óvart á ljósinu þegar það er geymt í tösku eða vasa.
- Ljósið er úr slitsterku áli og ABS-plasti og þolir vatnsslettur úr öllum áttum samkvæmt IPX4 staðli.
- Endurhlaðanleg rafhlaða er hlaðin með USB-C hleðslusnúru.
- Rafhlaðan endist í allt að 6 klukkustundir á lægstu stillingu.
- Vatnsvörn samkvæmt IPX4 staðli.
Lýsingarstillingar:
Turbo-stillingin er virk í 15 sekúndur í senn. Að þeim tíma loknum fer ljósið sjálfkrafa aftur í fyrri lýsingarstillingu.
| Stilling |
Ljósstyrkur |
Lýsingartími |
Drægni |
| Turbo |
700 lm |
15 sek. |
90 m |
| High – mikill |
250 lm |
1,5 klst. |
50 m |
| Medium – miðlungs |
120 lm |
3 klst. |
40 m |
| Low – lítill |
35 lm |
6 klst. |
20 m |
Innifalið:
- NEBO MYCRO® 700 höfuðljós.
- Endurhlaðanleg rafhlaða.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini.
- Klemma fyrir skyggni derhúfu.
- USB-A í USB-C hleðslusnúra.