NEBO Transcend™ 1500
Öflugt hlaðanlegt höfuðljós með allt að 1.500 lúmena ljósstyrk.
NEBO Transcend™ 1500 er fjölhæft og slitsterkt LED-höfuðljós sem sameinar mikinn ljósstyrk, einfalda stjórnun og vandaða hönnun. Höfuðljósið hentar einstaklega vel fyrir útivist, fjallgöngur, skíðagöngur, útilegur og vinnu við krefjandi aðstæður.
Höfuðljós fyrir þau sem gera miklar kröfur um ljósstyrk, endingu og fjölbreytta notkunarmöguleika.
Eiginleikar
- Fimm lýsingarstillingar gera þér kleift að aðlaga ljósstyrkinn eftir aðstæðum. Turbo-stillingin skilar allt að 1.500 lúmenum með lýsingardrægni allt að 129 metrum.
- Snúningsrofi auðveldar val á ljósstyrk og Smart Power Control (SPC) tryggir mjúk umskipti á milli lýsingarstillinga.
- Ljósið er með stillanlegum lýsingarhalla og hægt er að losa það úr höfuðbandsfestingunni og nota sem vasaljós eða vinnuljós.
- Öflugur segull á enda ljóssins gerir kleift að festa það við viðeigandi málmfleti.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini stuðlar að þægindum og auknum sýnileika í myrkri.
- Ljósið er úr slitsterku rafhúðuðu áli sem þolir högg og krefjandi aðstæður.
- Ljósið er vatnshelt samkvæmt IPX7 staðli.
- Endurhlaðanleg 3.200 mAh litíumrafhlaða er hlaðin með USB-C hleðslusnúru.
- Gaumljós í rofanum gefur til kynna stöðu rafhlöðunnar og blikkar þegar hleðslan fer niður fyrir 25%.
- Rafhlaðan virka í allt að 28 klukkustundir.
Lýsingarstillingar
Turbo-stillingin er virk í 30 sekúndur í senn. Að þeim tíma loknum fer ljósið sjálfkrafa aftur í fyrri lýsingarstillingu til að koma í veg fyrir ofhitnun og vernda rafhlöðuna. Hægt er að virkja Turbo-stillinguna aftur eftir þörfum.
| Turbo |
1.500 lm |
30 sek. |
129 m |
| High – mikill |
750 lm |
4 klst. |
91 m |
| Medium – miðlungs |
300 lm |
5,5 klst. |
58 m |
| Low – lítill |
30 lm |
28 klst. |
18 m |
| Strobe – blikkljós |
750 lm |
4 klst. |
91 m |
Fylgir með
- NEBO Transcend™ 1500 höfuðljós.
- Endurhlaðanleg 3.200 mAh rafhlaða.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini.
- USB-A í USB-C hleðslusnúra.