NEBO Transcend™ 3000 Headlamp
Öflugt hlaðanlegt höfuðljós með allt að 3.000 lúmena ljósstyrk.
NEBO Transcend™ 3000 er fjölhæft og slitsterkt LED-höfuðljós sem sameinar mikinn ljósstyrk, langan lýsingartíma, einfalda stjórnun og vandaða hönnun. Höfuðljósið hentar einstaklega vel fyrir útivist, fjallgöngur, skíðagöngur, útilegur og vinnu við krefjandi aðstæður.
Tilvalið höfuðljós fyrir þau sem gera miklar kröfur um ljósstyrk, langan lýsingartíma, endingu og fjölbreytta notkunarmöguleika.
Eiginleikar
- Fimm stillingar gera þér kleift að aðlaga ljósstyrkinn eftir aðstæðum.
- Turbo-stillingin skilar allt að 3.000 lúmenum með lýsingardrægni allt að 223 metrum.
- Snúningsrofi auðveldar val á ljósstyrk og Smart Power Control™ (SPC) tryggir mjúk umskipti á milli lýsingarstillinga. Stór stjórnhnappur og snúningsrofi auðvelda notkun með hanska.
- Ljósið er með 180° stillanlegum lýsingarhalla og hægt er að losa það úr höfuðbandsfestingunni og nota sem vasaljós eða vinnuljós.
- Öflugur segull á enda ljóssins gerir kleift að festa það við viðeigandi málmfleti.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini og aftakanlegri ól yfir höfuðið stuðlar að þægindum og auknum stöðugleika. Fjórar festingar fyrir öryggishjálm fylgja ljósinu.
- PowerSave™ læsing kemur í veg fyrir að kvikni óvart á ljósinu þegar það er geymt í tösku eða vasa.
- Direct-to-Low™ gerir kleift að kveikja beint á lægstu lýsingarstillingunni.
- Ljósið er úr slitsterku yfirborðsmeðhöndluðu áli sem þolir högg og krefjandi aðstæður.
- Ljósið er vatnshelt samkvæmt IPX7 staðli og þolir að fara á allt að eins metra dýpi í ferskvatni í allt að 30 mínútur.
- Endurhlaðanleg 4.000 mAh litíumrafhlaða er hlaðin með USB-C hleðslusnúru.
- Gaumljós í stjórnhnappinum gefur til kynna stöðu rafhlöðunnar og blikkar þegar hleðslan fer niður fyrir 25%.
- Rafhlaðan endist í allt að 45 klukkustundir á lægstu stillingu.
- Hægt að nota sem höfuðljós, vasaljós eða vinnuljós.
Lýsingarstillingar:
Turbo-stillingin er virk í 30 sekúndur í senn. Að þeim tíma loknum fer ljósið sjálfkrafa aftur í fyrri lýsingarstillingu til að koma í veg fyrir ofhitnun og vernda rafhlöðuna. Hægt er að virkja Turbo-stillinguna aftur eftir þörfum.
| Stilling |
Ljósstyrkur |
Lýsingartími |
Drægni |
| Turbo |
3.000 lm |
30 sek. |
223 m |
| High – mikill |
1.500 lm |
2 klst. |
149 m |
| Medium – miðlungs |
750 lm |
4,5 klst. |
107 m |
| Low – lítill |
50 lm |
45 klst. |
31 m |
Fylgir með:
- NEBO Transcend™ 3000 höfuðljós.
- Endurhlaðanleg 4.000 mAh rafhlaða.
- Stillanlegt höfuðband með endurskini.
- Aftakanleg ól yfir höfuðið.
- Fjórar festingar fyrir öryggishjálm.
- USB-A í USB-C hleðslusnúra.