New Balance Ellipse
Léttir og einstaklega þægilegir hlaupaskór með mjúkri og fjaðrandi dempun.
New Balance Ellipse eru mjög fjölhæfir hlaupaskór sem sameina léttleika, mjúka dempun og anda vel. Skórnir henta vel fyrir daglegar hlaupaæfingar, lengri hlaup, gönguferðir og daglega notkun.
Eiginleikar
- Fresh Foam X millisóli veitir einstaklega mjúka og fjaðrandi dempun án þess að auka þyngd skónna að óþörfu.
- Létt yfirbygging er úr sérhönnuðu, marglaga mesh efni (Engineered Mesh) sem andar vel og veitir stuðning á völdum svæðum.
- Innra fóður, áföst tunga og teygjanlegar reimar stuðla að góðu og þægilegu passformi og halda fætinum vel á sínum stað.
- Slitsterkur gúmmísóli veitir gott grip á malbiki og öðrum hörðum undirflötum.
- Endurskinsmerki eykur sýnileika.
- Skórnir eru með hlutlausum stuðningi (Neutral) og henta hlaupurum sem þurfa ekki sérstakan stuðning.
- 8 mm drop - þyngd 273 g.
- Skórnir hafa hlotið viðurkenningu American Podiatric Medical Association (APMA).
Best fyrir
- Hlaup, göngur og daglega notkun.