New Balance Ellipse Breathe
Einstaklega léttir og þægilegir hlaupaskór með mjúkri og fjaðrandi dempun og sérstaklega góðri öndun.
New Balance Ellipse Breathe eru léttari og andar betur en New Balance Ellipse hlaupaskónum. Skórnir sameina mjúka og fjaðrandi Fresh Foam X dempun og létta yfirbyggingu sem andar einstaklega vel. Þeir henta vel fyrir daglegar hlaupaæfingar, lengri hlaup, gönguferðir og daglega notkun, sérstaklega á hlýrri dögum.
Tilvaldir hlaupaskór fyrir þær sem hafa verið hrifnar af mjúku Fresh Foam X dempuninni í eldri útgáfum New Balance 1080 og vilja létta skó sem anda vel.
Eiginleikar
- Fresh Foam X millisóli veitir einstaklega mjúka og fjaðrandi dempun án þess að auka þyngd skónna að óþörfu.
- Sérhönnuð, létt yfirbygging úr mesh efni (Engineered Mesh) sem andar mjög vel og stuðlar að auknum þægindum við hlaup í hlýju veðri.
- Innra fóður, áföst tunga og teygjanlegar reimar stuðla að góðu og þægilegu passformi og halda fætinum vel á sínum stað.
- Slitsterkur gúmmísóli veitir gott grip á malbiki og öðrum hörðum undirflötum.
- Endurskinsmerki auka sýnileika.
- Skórnir eru með hlutlausum stuðningi (Neutral) og henta hlaupurum sem þurfa ekki sérstakan stuðning.
- 8 mm drop – þyngd 197 g.
Best fyrir
- Hlaup, göngur og daglega notkun.
- Sérstaklega góðir fyrir hlaup í hlýju veðri og á hlaupabretti.