Patagonia Down Sweater Hoody er léttur og hlýr dúnjakki með hettu fyrir daglega notkun og útivist. Hann sameinar vindhelt ytra efni og 800 fill power dúnfyllingu það er hægt að pakka honum saman í eigin vasa þegar hann er ekki í notkun. Góð einangrandi hólf sem dreifir einangruninni vel um flíkina.
Eiginleikar:
· Ytra efni og fóður eru úr 20-denier NetPlus®, 100% endurunnu næloni með ripstop-vefnaði, unnu úr notuðum fiskinetum. Efnið er með DWR-vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun sem er framleidd án þess að PFAS-efnum sé bætt við af ásetningi.
· Allur dúnninn er RDS-vottaður samkvæmt Responsible Down Standard. Staðallinn setur kröfur um dýravelferð í framleiðslu dúns og fjaðra, meðal annars varðandi bann við nauðfóðrun og því að fuglar séu reyttir lifandi.
· Stillanleg hetta.
· Rennilásinn að framan er með innri vindhlíf og hlíf við hökuna sem kemur í veg fyrir að rennilásinn liggi beint að húðinni.
· Tveir renndir hliðarvasar og innri brjóstvasi.
· Hægt er að pakka jakkanum saman í brjóstvasann.
· Teygjukantar við úlnliði og teygja í faldi hjálpa til við að halda hlýjunni inni og minnkar líkurnar á því að vindur komist inn undir jakkann.
· Með jakkanum fylgir viðgerðarbót sem má nota til að laga smáar rifur í efninu á ferðinni
Tæknilegar upplýsingar:
Ytra efni og fóður: 20-denier NetPlus® ripstop, 100% endurunnið nælon.
Einangrun: 800 fill power, RDS-vottaður dúnn.
Snið: Hefðbundið snið – Regular fit.
Vottanir: bluesign® APPROVED efni; framleiddur í Fair Trade Certified™ verksmiðju.