Patagonia Dirt Roamer Bike Waist Pack 3L er létt og stöðug mittistaska, sérstaklega hönnuð fyrir fjallahjólreiðar. Taskan rúmar 3 lítra og veitir nægt pláss fyrir nauðsynlegan búnað án þess að vera of fyrirferðarmikil.
Eiginleikar:
- Breitt Regulator® mittisbelti úr netefni liggur þétt að líkamanum og andar vel. Netefnið er notað á þeim svæðum sem liggja að líkamanum til að auka öndun og þægindi.
- Þrjú rúmgóð hólf með rennilásum dreifa þyngdinni yfir mittið og hjálpa töskunni að sitja stöðugri við hreyfingu. Að innan er skilrúm sem auðveldar að halda smærri búnaði skipulögðum.
- Taskan er með tveimur brúsahöldurumsem eru staðsettir á milli hólfanna. Hönnunin heldur brúsunum þétt að líkamanum sem kemur í veg fyrir að þeir hreyfist til þegar hjólað er á ójöfnu undirlagi.
- Ytra efnið er úr slitsterku 210-denier, 100% endurunnu næloni með PU-húðun og DWR-vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun. DWR-meðhöndlunin er framleidd án þess að PFAS-efnum sé bætt við af ásetningi.
- Fellanlegar burðarólar að utan má nota til að festa hlífar eða annan aukabúnað þegar þörf er á.
- Fóður og mittisbelti úr bluesign® APPROVED efnum.
- Framleidd í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Efni og aðrar upplýsingar:
-
Ytra efni: 210-denier, 100% endurunnið nælon með PU-húðun
-
Fóður: 200-denier, 100% endurunnið pólýester með PU-húðun
-
Mittisbelti: 100% endurunnið pólýester, Regulator® airmesh
-
Þyngd: 244 g