Patagonia Refugio Day Pack 26L er slitsterkur og fjölhæfur 26 lítra bakpoki fyrir vinnu, skóla og dagsferðir. Rúmgott aðalhólf með innri vösum auðveldar skipulag og bólstrað tölvuhólf rúmar allt að 15" fartölvu.
Eiginleikar
- Bakpanel sem andar vel eykur þægindi.
- Pokinn er með upphengingu fyrir vatnspoka og opi fyrir drykkjarslöngu.
- Renndur vasi að framan og hliðarvasar fyrir vatnsbrúsa.
- Festing fyrir hjólaljós er neðst á pokanum.
Efni
- Ytra byrði úr 400 denier ripstop-efni úr 100% endurunnu pólýester, með PU-húðun og vatnsfráhrindandi DWR-meðhöndlun án vísvitandi íblöndunar PFAS.
- Fóður úr 200 denier endurunnu pólýester með PU-húðun. Bakpanel og axlarólar eru klædd loftandi netefni úr endurunnu pólýester.
Umhirða
- Handþvoið og hengið upp til þerris.
- Ekki nota bleikiefni.
- Ekki strauja eða setja í þurrhreinsun.