Patagonia Terravia Peak eru slitsterkar og teygjanlegar útivistarbuxur fyrir konur, hannaðar fyrir krefjandi fjallgöngur, klettaklifur og aðra útivist.
Eiginleikar:
- Aðalefnið er úr 91% endurunnu næloni og 9% elastani og er með DWR-vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun sem hjálpar til við að hrinda frá sér léttri úrkomu. Meðhöndlunin er framleidd án þess að PFAS-efnum sé bætt við af ásetningi.
- Styrkingar á hnjám og setu eru úr slitsterku tvöföldu efni. Sem veitir aukna vörn gegn núningi og sliti.
- Buxurnar eru með stillanlegu belti sem hægt er að taka úr ásamt beltislykkjum, þannig að auðvelt er að laga mittið að líkamanum.
- Fimm renndir vasar: Tveir vasar að framan, einn vasi á hægra læri og tveir vasar að aftan.
- Stillanleg skálmaop með frönskum rennilás sem passa yfir gönguskó.
- Mótað snið við hné fyrir gott hreyfifrelsi.
- Krókur til að festa skálmarnar við skóreimar.
- bluesign® APPROVED styrkingarefni
- Framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju
Efni og aðrar upplýsingar:
-
Aðalefni: 91% endurunnið nælon, 9% elastan
-
Styrkingar: 92% endurunnið nælon, 8% elastan
-
Snið: Aðsniðið – Slim fit
-
Innri skálmalengd: 76 cm / 30" – Regular
-
Þyngd: 499 g