Stance Boyd UL Poly Snow Sock
Þunnir og léttir sokkar fyrir skíði og snjóbretti. Þeir ná upp fyrir kálfa og eru með mjög þunnri dempun sem veitir þægindi án mikillar fyrirferðar í skónum.
Eiginleikar
- Mesh-svæði fyrir betri öndun.
- Teygjanlegt aðhald við ilboga og mótaður hæll hjálpa til við að halda sokkunum á sínum stað.
- Infiknit-styrkingar við hæl og tær auka slitþol.
- FreshTek-meðhöndlun stuðlar að rakalosun og dregur úr lykt.
- Saumlaus frágangur við tær dregur úr núningi.
Efni: 50% nælon, 43% pólýester og 7% elastan.