Stance Ruins Hike Crew Sokkar
Göngusokkar úr merínóullarblöndu með miðlungsþykkri dempun. Þeir ná upp að miðjum kálfa og veita gott aðhald. Merínóull hjálpar til við að halda jöfnu hitastigi og mesh-svæði fyrir betri öndun.
Eiginleikar
- Dempun á völdum svæðum eykur þægindi í gönguskóm.
- Teygjanlegt aðhald við ilboga.
- Infiknit-styrkingar auka slitþol.
- FreshTek-meðhöndlun stuðlar að rakalosun og dregur úr lykt.
- Vörn við ökkla og saumlaus frágangur við tær draga úr núningi frá skónum.
Efni: 39% nælon, 35% RWS-vottuð merínóull, 21% pólýester og 5% elastan.